Olivier Leflaive Bourgogne Margot 2020 – 750 ml

100% Pinot Noir

 

 

5.900 kr.

Uppskeran sótt á tuttugu ekrur sem teygja sig á milli ólíkra staða í Côte de Beaune, frá Puligny-Montrachet til Pernand-Vergelesses og þá er uppskeran einnig sótt á gamlan vínvið í Hautes Côtes.

Ríkjandi jarðvegur á þessum ekrum er leir.

Berin eru handtínd og flokkuð.  Um 20% berjanna er haldið á stilkum en 80% án þeirra.

Gerjun vínsins á sér stað í opnum tönkum í 15 til 20 daga.

Allt vínið er geymt í 16 mánuði á eik. Um 18% tunnanna eru nýjar.

Olivier Leflaive er meðal eftirtektarverðustu víngerðarmanna Búrgúndí-héraðsins. Hann er alinn upp innan Domaine Leflaive enárið 1985 hélt hann á vit ævintýranna og stofnaði til sinnar eigin víngerðar. Hún hefur fyrir löngu sannað sig og eru vínin þaðan eftirsótt meðal allra áhugamanna um héraðið og það besta sem þaðan kemur í hvítu og rauðu.