Piper-Heidsieck var stofnað í Champagne árið 1785 og öðlaðist fljótt mikla hylli meðal frönsku þjóðarinnar. Var það ekki síst fyrir þá staðreynd að Marie Antoinette, drottningu Lúðvíks XIV í Versölum sem tók ástfóstri við vínið.
Síðar hafa þekktir einstaklingar á borð við Marilyn Monroe og Lionel Messi opnað ófáar flöskur af þessu frábæra víni. Það er einnig tengt sögu kvikmyndanna órofa böndum því kampavín kom fyrst fram á hvíta tjaldinu árið 1933 þegar Steini og Olli opnuðu flösku af Piper-Heidsieck með miklum tilþrifum. Þessi miklu tengsl hafa haldist og hefur Piper-Heidsieck lengi verið opinbert kampavín Óskarsverðlaunahátíðarinnar og í mörg ár var það einnig húsvínið á Kvikmyndahátíðinni í Cannes.