Piper-Heidsieck Essentiel Blanc de Blancs – 750 ml

100% Chardonnay

35% blöndunnar eru forðavín

4 gr./l af viðbættum sykri

Blanc de Blancs útgáfan af Essentiel er elegant og fersk. Sótt á bestu Chardonnay-ekrur Champagne og hátt hlutfall forðavína gera það margbrotið og einkar ljúffengt.

8.900 kr.

Vörunúmer: 0019 Flokkar: , , ,

Piper-Heidsieck var stofnað í Champagne árið  1785 og öðlaðist fljótt mikla hylli meðal frönsku þjóðarinnar. Var það ekki síst fyrir þá staðreynd að Marie Antoinette, drottningu Lúðvíks XIV í Versölum sem tók ástfóstri við vínið.

Síðar hafa þekktir einstaklingar á borð við Marilyn Monroe og Lionel Messi opnað ófáar flöskur af þessu frábæra víni. Það er einnig tengt sögu kvikmyndanna órofa böndum því kampavín kom fyrst fram á hvíta tjaldinu árið 1933 þegar Steini og Olli opnuðu flösku af Piper-Heidsieck með miklum tilþrifum. Þessi miklu tengsl hafa haldist og hefur Piper-Heidsieck lengi verið opinbert kampavín Óskarsverðlaunahátíðarinnar og í mörg ár var það einnig húsvínið á Kvikmyndahátíðinni í Cannes.